Bananakjúlli

1 kjúklingur
1 tsk kjúklingakrydd
1 tsk salt
1/2 tsk sítrónupipar
3/4 dl chilisósa
3 msk tómatsósa
1 1/2 dl kaffirjómi
1/2 dl salthnetur (má sleppa)
1 1/2 banani (má sleppa)
6-7 sneiðar beikon

1. Kjúklingurinn er þveginn, þerraður og hlutaður í sundur. Bitunum er raðað í eldfast mót og þeir kryddaðir og síðan bakaðir í ofni við 200°c í 30 mínútur. Gott er að ausa safanum sem kemur í mótið yfir bitana einu sinni til tvisvar meðan á steikingunni stendur.
2. Klippið beikonið í litla bita og steikið það vel á heitri pönnu og færið það síðan upp á tvöfaldan eldhúspappír svo fitan drjúpi af.
3. Hrærið saman chilisósu, tómatsósu og kaffirjóma og bætið salthnetum og beikoni út í. Takið úr ofninum (eftir ca 30 mínútur) og fleytið alla fitu ofan af soðinu.
4. Hellið blöndunni nú yfir kjúklingabitana og brytjið banana yfir. Steikið í 10-15 mínútur í viðbót.
5. Klippið ferska steinselju yfir réttinn áður en hann er borinn fram.

Berið fram með soðnum hrísgrjónum og brauði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Þú ert ótrúlega dugleg :) takk fyrir góðar uppskriftir

Guðborg Eyjólfsdóttir, 27.2.2008 kl. 19:33

2 Smámynd: Mamma

Verði þér að góðu.....annars hef ég gert mest lítið annað en að safna þessu saman

Mamma, 27.2.2008 kl. 19:39

3 identicon

Rosalega gott en hvaða kryddum mælirðu helst með á franskarnar

Hafdís (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband