Falafel (matbollur)

1 stór laukur
6 dl soðnar kjúklingabaunir
4 hvítlauksgeirar
1 tsk kóríander duft
1 tsk cummin duft
cayenne pipar á hnífsoddi
hvítur pipar
salt
1 dl hveiti
olía til að steikja upp úr


Maukið laukinn i matvinnsluvél og bætið baununum saman við ásamt kryddinu, bætið hveitinu síðast út í.
Látið maukið bíða í kæli í nokkrar klukkustundir. 
Mótið kúlur, á stærð við valhnetur, og fletið örlítið út með lófanum.
Hitið olíu á pönnu (olían á að ná u.þ.b. 1 sm upp á barmana) og steikið bollurnar á báðum hliðum þar til þær eru gullnar og stökkar að utan.  Leggið bollurnar á eldhúsbréf svo fitan renni af þeim áður en þær eru bornar fram.
Bollurnar eru líka ágætar kaldar og þær má frysta.  Þessa uppskrift má einnig nota í buff, en þá er gott að nota ísskeið eða stóra matskeið til að slumpa á stærðina á buffunum.  Rúllið saman í kúlu og fletið út með lófanum.  Ef kryddið í
uppskriftina er ekki til í skápunum, er tilvalið að nota eitthvað annað, t.d. svolíðið af karrý og eitthvert gott jurtakrydd. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband