Vanillufrómas með perum

  • 4 stk eggjarauður
  • 80 gr sykur
  • 1 stk vanillustöng
  • 1 tsk vanilludropar
  • 5 stk matarlímsblöð
  • ½ líter rjómi, léttþeyttur
  • niðursoðnar perur
  • 1½ dl rjómi
  • 200 gr súkkulaði, smátt saxað.
Þeytið eggjarauðurnar með sykrinum þar til létt og ljóst, skafið kornin úr vanillustönginni og setjið saman við ásamt dropunum.
Setjið matarlímið í kalt vatn í ca 5 mín, leysið svo límið upp með 2 msk af vatni.  Setjið matarlímið saman við þeytinguna og blandið svo rjómanum varlega saman við.  (þessum léttþeytta)

Hitið 1½ dl af rjóma að suðu og hellið yfir smátt saxað súkkulaðið, blandið rólega saman þar til fallegur glans er kominn á súkkulaðið.
Setjið eina peru (hálfa) í glas, setjið ca 2 msk af súkkulaðinu yfir peruna og hellið svo frómasinum yfir.  Setjið í kæli og látið standa í amk 3 klst eða yfir nótt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband