Steiktur kjúklingur með hvítlauk

kjulli a diskÞessi réttur er hriiiiiiikalega góður og vinsæll meðal barnana á mínu heimili Smile

1 kjúklingur
nýmalaður pipar (ég nota sítrónupipar)
salt
1 sítróna
42 hvítlauksgeirar (3 heilir ca)
½ l vatn
kjúklingakraftur eftir þörfum
sósujafnari

Hitaðu ofninn í 200°C.  Kryddaðu kjúklinginn að utan og innan með pipar og salti.  Skerðu nokkrar örþunnar sneiðar úr miðri sítrónunni, losaðu haminn frá neðanverðri bringunni - það er mjög auðvelt - og smeygðu sítrónusneiðunum inn undir hann.  Losaðu einn hvítlaukinn sundur í geira, flysjaðu þá og settu inn í kjúklinginn.  Settu kjúklinginn í eldfast fat, kreistu afganginn af sítrónusafanum yfir og steiktu í hálftíma.

Losaðu hvítlaukana sem eftir eru sundur í geira og flysjaðu þá.  Dreifðu þeim í kringum kjúklinginn og helltu vatninu í fatið.  Steiktu áfram í 45-60 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er steiktur í gegn og tær safi rennur út ef stungið er í lærið þar sem það er þykkast.

Taktu kjúklinginn út og halltu honum heitum.  Helltu soðinu og hvítlauknum í pott og hitaðu að suðu.  Bragbættu soðið með kjúklingakrafti, pipar og salti eftir smekk og þykktu það ögn með sósujafnara - en sósan á alls ekki að vera þykk.

Rosalega gott með fersku salati og bökuðum kartöflum.

 

kjulli

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband