Rækjurúllur með ávöxtum

Uppskriftin er fyrir ca. 4.

225 gr Havarti ostur, rifinn
225 gr rjómaostur
225 gr rækjur, saxaðar
½ dl serrí eða portvín
1 dl saxaðar, þurrkaðar aprikósur
1 dl saxaðir, þurrkaðir eplahringir
12 ósætar pönnukökur

Rífið ostinn í hærirvélarskál, setjið rjómaostinn saman við og hrærið.  Bætið rækjunum, sérríinu og ávöxtunum út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel.

Bakið pönnukökur samkvæmt venjulegri uppskrift, nema ÁN sykurs og vanilludropa.  Smyrjið fyllingunni á pönnukökurnar og rúllið þeim þétt upp.  Látið standa í kæli fram að framreiðslu.  Skerið í u.þ.b. 2 cm bita og stingið pinna í.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband