Egg og beikon í ofni

Fyrir 4.

1 msk smjör
1 pakki bacon
8 egg
handfylli af saxaðri steinselju
4 msk parmesanostur, rifinn
Maldon salt og nýmalaður pipar.

Bræðið smjörið á pönnu og steikið baconið eftir smekk.  Leggið það á eldhúspappír og látið kólna.  Hitið ofninn í 180°C.
Hálffyllið djúpa ofnskúffu af volgu vatni og raðið í hana 4 litlum, smurðum, eldföstum mótum.  Hrærið saman eggin, steinseljuna og parmesanostinn og kryddið með salti og pipar eftir smekk.  Bætið baconinu við og hellið blöndunni í formin.
Bakið í 15 mínútur.

Berið fram til dæmis með ofnbökuðum eða steiktum tómötum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband