Hvít Lobes cobes

2 kg nautakjöt eða kjötafgangar.
4 laukar
1 ½ kg kartöflur
lárviðarlauf
heill pipar og salt
  

Kjötið eða kjötafgangarnir eru skornir í litla bita (1 ½ cm).  Kjötbitarnir eru látnir út í sjóðandi vatn og suðunni hleypt upp á þeim.  Síðan eru þeir skolaðir vandlega í köldu vatni.  Kjötið er sett yfir til suðu í vatni svo fljóti yfir kjötið.  Soðið með söxuðum lauk og hráum katröflum, sem eru skornar í litla bita, og kryddpoka með lárviðarlaufum, heilum pipar og salti, sem látið er ofan á kjötið.  Þétt lok sett ofan á pottinn og soðið í 1- 1½ tíma, eða þar til kartöflurnar eru mauksoðnar, þá er öllu blandað saman.  Framreitt með köldum smjörkúlum eða smurðu rúgbrauði.  Það má einnig nota soðna, nýja eða saltaða afganga í lobes cobes.  Kjötið er skorið í litla bita og blandað út í kartöflurnar, þegar þær eru mauksoðnar.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband