Fylltar svínakótelettur (fyrir 4)
26.2.2008 | 16:45
4 stórar, þykkar svínakótelettur
1 dl saxaðar blandaðar kryddjurtir (t.d. steinselja, graslaukur og salvía)
1 blaðlaukur, saxaður
Salt og grófmalaður svartur pipar
Skerið vasa í kóteletturnar næstum inn að beini og fyllið með kryddjurtunum og blaðlauknum.

Kryddið vel með salti og pipar og steikið kóteletturnar í olíu eða smjöri á pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
Berið fram með hrísgrjónum eða kartöflubátum og salati ásamt góðri sósu. Einnig er gott að sjóða hrísgrjón og blanda einu söxuðu epli út í ásamt einum söxuðum blaðlauk.
Berið fram með hrísgrjónum eða kartöflubátum og salati ásamt góðri sósu. Einnig er gott að sjóða hrísgrjón og blanda einu söxuðu epli út í ásamt einum söxuðum blaðlauk.
Meginflokkur: Svínakjöt | Aukaflokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.