Kryddbrauð Stínu frænku
21.11.2010 | 16:37
- 3 dl haframjöl
- 3 dl hveiti
- 3 dl sykur, alveg óhætt að minnka það í 1-2 dl
- 3 dl mjólk
- 1 egg
- 2 msk kakó
- 2 tsk kanill
- 2 tsk negull
- 2 tsk natron (matarsódi)
Öllu blandað saman og hrært með sleif. Sett í aflangt form og bakað við 180°C í ca 40 mínútur.
Hrikalega gott nýbakað með smjöri og osti
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.