Linsubaunasúpa með grænmeti og kókos
19.4.2009 | 16:14
Fyrir 4.
- 200 gr linsubaunir
2 laukar
3 gulrætur
1 paprika
4 kartöflur
2 msk ólífuolía
1 L grænmetissoð
8 msk balsam edik
Salt
múskat
karrý
sýrður rjómi
kókosmjöl
Leggið linsubaunirnar í bleyti í sólarhring.
Hellið vatninu af linsubaununum og setjið í pott. Brytjið grænmetið útí.
Bætið grænmetissoði, balsamediki og olíunni saman við. Kryddið eftir smekk.
Sjóðið í u.þ.b. klukkustund,
Setjið súpuna í skál og stráið kókosmjöli yfir. Setjið eina msk af sýrðum rjóma í hverja skál :)
Meginflokkur: Hollari deildin | Aukaflokkur: Súpur | Breytt 22.8.2009 kl. 11:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.