Skyrsúpa
30.7.2008 | 13:04
1 lítil skyrdós
2½ dl. mjólk
1 msk. sykur
1 tsk. vanilludropar
½ banani
½ epli
1. Hrærðu skyrið
2. Mældu mjólkina og helltu henni saman við í smáskömmtum.
3. Bættu vanilludropum og sykri saman við og hrærðu þangað til sæupan er laus við kekki.
4. Skerðu niður ávextina og bættu þeim saman við.
5. Berðu súpuna fram vel kalda.
Meginflokkur: Krakkaeldhúsið | Aukaflokkur: Súpur | Breytt 22.8.2009 kl. 11:31 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.