Sæt kartöflusúpa
27.2.2008 | 19:52
Ca. 3 kg sætar kartöflur
1 bréf bacon, fitulítið
1 laukur
3 hvítlauksrif
1 jonagold epli
Matvinnslurjómi, 1 peli
2 lítrar af kjúklingasoði.
Útbúðu soðið eftir leiðbeiningum á teningapakkanum.Steiktu baconið þar til það verður stökkt og settu það svo til hliðar. Notaðu feitina af baconinu til að steikja rest, þannig að ekki henda henni.Skrælaðu kartöflurnar og skerðu þær í litla bita. Afhýddu laukinn og skerðu hann í sneiðar og afhýddu hvítlaukinn.....ekki þarf að merja hann. Steiktu kartöflurnar og laukinn á pönnunni með baconfitunni, líklega þarftu nokkrar atrennur og bætir þá bara við feiti. Settu svo allt gummsið nema baconið í pottinn með kjúklingasoðinu, og bættu við eplinu, afhýddu og skorið í bita, og rjómanum. Látið sjóða við low-medium hita í 1 ½ - 2 tíma.Látið kólna pínu og sett í skömmtum í matvinnsluvél og maukað.Baconið svo sett útí áður en súpan er borin fram.Mjög gott er að útbúa hana nokkru fyrr og hita hana upp.
Hún á að hafa svona baunasúpufíling, þ.e.a.s. áferðin á henni.

Meginflokkur: Súpur | Aukaflokkur: Kartöfluréttir | Breytt 22.8.2009 kl. 11:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.