Vanillufrómas með perum
24.11.2010 | 18:34
- 4 stk eggjarauður
- 80 gr sykur
- 1 stk vanillustöng
- 1 tsk vanilludropar
- 5 stk matarlímsblöð
- ½ líter rjómi, léttþeyttur
- niðursoðnar perur
- 1½ dl rjómi
- 200 gr súkkulaði, smátt saxað.
Setjið matarlímið í kalt vatn í ca 5 mín, leysið svo límið upp með 2 msk af vatni. Setjið matarlímið saman við þeytinguna og blandið svo rjómanum varlega saman við. (þessum léttþeytta)
Hitið 1½ dl af rjóma að suðu og hellið yfir smátt saxað súkkulaðið, blandið rólega saman þar til fallegur glans er kominn á súkkulaðið.
Setjið eina peru (hálfa) í glas, setjið ca 2 msk af súkkulaðinu yfir peruna og hellið svo frómasinum yfir. Setjið í kæli og látið standa í amk 3 klst eða yfir nótt.
Meginflokkur: Eftirréttir | Aukaflokkur: Matur og drykkur | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.